GLÍMA Á MENNINGARNÓTT

GLÍMA Á MENNINGARNÓTT
Klambratún á Menningarnótt

Menningarnótt Reykjavíkurborgar mun verða á laugardaginn næstkomandi og að því tilefni ætlum við í Mjölni að vera með opna BJJ æfingu á Klambratúni. 

Við ætlum að endurtaka leikinn frá því í fyrra en úr varð úr fjölsótt æfing með nýjum og gömlum Mjölnisfélögum.

Við munum byrja klukkan 16:30  og verða til klukkan 18:00.

Þetta er frábært tækifæri til að hafa gaman af og gera sér glimrandi góðan glímudag á menningarnótt.  

Iðkendur eru hvattir til að bjóða fjölskyldu og vinum að líta við svo þau fái tækifærifæri á að upplifa þann frábæra anda sem hefur skapast í kringum glímuna í Mjölni. 

Gengið er út frá því að æfingin sé í nogi, en þeir sem eiga gi mega að sjálfsögðu taka það með ef þeir vilja.

Sjáumst á Klambratúni á Menningarnótt!


MjölnirMjölnir MMA

Flugvallarvegur 3-3a
102 Reykjavík
Iceland

+354 534 4455
mjolnir@mjolnir.is

OPNUNARTÍMAR

Mánudagar, miðvikudagar og föstudagar: 06:15 - 22:00

Þriðjudagar og fimmtudagar: 07:00 - 22:00

Föstudagar: 06:15 - 20:00

Laugardagar: 08:45 - 15:00

Sunnudagar: 10:15 - 15:00

Æfingasalir loka samkvæmt stundatöflu þegar síðasta tíma lýkur en lyftingasalir eru opnir mán.-fim. til 22:00 (fös. 20:00).

Sauna, heiti- og kaldi pottur loka 15 min á undan skipulagðri lokun.

Skráning á póstlista

Svæði