MJÖLNIR OPEN UNGLINGA 11. JÚNÍ

MJÖLNIR OPEN UNGLINGA 11. JÚNÍ
Mjölnir Open unglinga

Mjölnir Open unglinga 2016 fer fram laugardaginn 11. júní næstkomandi í Mjölniskastalanum að Seljavegi 2 í Reykjavík. Keppt er í uppgjafarglímu (nogi) í aldursflokkum unglinga fæddra: 1999-2000, 2001-2002 og 2003-2004, sjá nánar hér að neðan. Mótið hefst stundvíslega kl. 11:00 en mæting fyrir keppendur er kl. 10:30. Skráning fer fram í afgreiðslu Mjölnis eða á mjolnir@mjolnir.is og lýkur skráningu kl. 18 fimmtudaginn 9. júní. Skráningargjald er kr. 1.500.

Þjálfarar félaga skulu senda inn skráningar en þar skal koma fram fæðingarár keppanda, belti og þyngd. Þyngdin verður síðan staðfest á keppnisdegi. Standist keppandi ekki innsenda þyngd er viðkomandi dæmdur úr leik. Tekið skal fram að ekki er gert ráð fyrir að unglingar séu að létta sig fyrir keppni enda fara þyngdaflokkar eftir skráningu á mótið og eru því ekki gefnir upp fyrirfram.

2001-2002 og 2003-2004 (glímulengd 4 mínútur)

Við keppni í þessum flokkum skal leggja höfuðáherslu á að passa upp á að fyrirbyggja meiðsli. Dómari hefur vald til þess að stöðva glímu hvenær sem á henni stendur til að forða keppendum frá meiðslum og er mælst til þess að hann geri það.

Leyfileg brögð:

  • Svæfingarlásar eru leyfðir ("naktar" þ.e. án fatnaðar) en skal miða við að ef að dómari telur að keppandi sé nálægt því að ná lásnum þá skal dómari stöðva glímuna og úrskurða viðkomandi sigurvegara.
  • Beinir handarlásar eru leyfðir sem og axlarlásar. Ef að dómari telur að keppandi sé nálægt því að ná lásnum þá skal dómari stöðva glímuna og úrskurða viðkomandi sigurvegara.


Óleyfileg brögð:

  • Úlnliðslásar eru óleyfilegir.
  • Allir fótalásar eru óleyfilegir, hvort sem um er að ræða beina eða snúandi.
  • Allir lásar sem fela í sér að snúa upp á háls/hrygg eða setja háls/hrygg í óþægilega stöðu eru óleyfilegir.
  • Öll önnur brögð sem eru óleyfileg í aldurflokki 1999-2000 (hér að neðan) eru einnig óleyfileg hér.



1999-2000 (glímulengd 5 mínútur)

Leyfileg brögð:

  • Öll svæfingartök ("naktar" þ.e. án fatnaðar).
  • Allir handarlásar, axlarlásar og úlnliðslásar.


Óleyfileg brögð:

  • Það má ekki kýla, sparka, bíta eða pota í líkamsop.
  • Það má ekki rífa í hár.
  • Það má ekki pota í sár eða vísvitandi valda skaða.
  • Það má ekki reyna að snúa háls í óþægilega stöðu.
  • að má ekki framkvæma lás sem snýr upp á hryggjaliði.
  • Það má ekki framkvæma fótalása, hvorki beina né snúandi.
  • Það má ekki lyfta manni sem liggur á baki í loftið og skella honum í gólfið.
  • Ef gripið er í fingur þá skal grípa í að minnsta kosti þrjá fingur sem liggja saman í einu gripi.

Það má vera að ofangreindur listi sé ekki tæmandi og því skal spyrja út í vafamál með hvort eitthvað megi eður ei þegar farið verður yfir reglur á mótsdegi. Dómarar áskilja sér rétt til að banna ákveðin brögð þó þau hafi ekki verið tilgreind á ofangreindum lista. Það er ítrekað við keppendur að sýna ávallt íþróttamannslega hegðun og er reiknað með því að keppendur hafi vit og þekkingu til að framkvæma ekki aðgerðir sem líklegt er að valdi líkamlegum skaða. Ef að dómari telur að keppandi hafi brotið af sér með því að stofna vísvitandi til líkamsskaða á öðrum keppanda þá skal þeim keppanda umsvifalaust vísað úr keppni.
Stigagjöf er hefðbundin samkvæmt reglum IBJJF.

Mótsstjóri er Ingibjörg Birna Ársælsdóttir.

Iðkendur athugið að allir tímar falla niður í Mjölni þennan laugardag vegna mótsins. Mætum og styðjum unga fólkið okkar.

Myndir frá Mjölnir Open unglinga 2015


MjölnirMjölnir MMA

Flugvallarvegur 3-3a
102 Reykjavík
Iceland

+354 534 4455
mjolnir@mjolnir.is

OPNUNARTÍMAR

Mánudagar, miðvikudagar og föstudagar: 06:15 - 22:00

Þriðjudagar og fimmtudagar: 07:00 - 22:00

Föstudagar: 06:15 - 20:00

Laugardagar: 08:45 - 15:00

Sunnudagar: 10:15 - 15:00

Æfingasalir loka samkvæmt stundatöflu þegar síðasta tíma lýkur en lyftingasalir eru opnir mán.-fim. til 22:00 (fös. 20:00).

Sauna, heiti- og kaldi pottur loka 15 min á undan skipulagðri lokun.

Skráning á póstlista

Svæði