SAMEINING KEPPNISLIÐA MJÖLNIS

SAMEINING KEPPNISLIÐA MJÖLNIS
Keppnislið Mjölnis

Ákveðið hefur verið að sameina keppnislið Mjölnis (CT) í MMA, BJJ og boxi (hnefaleikum) á þann hátt að þrekprófið inní liðið verður sameiginlegt og ákveðnar sameiginlegar æfingar í viku. Mætingaskylda á æfingar verður hjá öllum liðum.

MMA keppnisliðið er með æfingar kl. 18:00 á þriðjudögum og fimmtudögum, kl. 13:10 á mánudögum og miðvikudögum og þrekæfingu á föstudögum kl. 13:10.

BJJ keppnisliðið er með æfingar kl. 13:10 á mánudögum, kl. 11:00 á laugardögum og þrekæfingu á föstudögum kl. 13:10.

Box keppnisliðið er með æfingar kl. 18:00 á mánudögum, miðvikudögum og föstudögum, kl. 13:10 á miðvikudögum og þrekæfingu á föstudögum kl. 13:10.

Inntökupróf fyrir æfingahóp keppnisliðanna verður haldið tvisvar á ári og eftir það þurfa meðlimir liðsins að standast þrekpróf einu sinni á ári. Æfingahópur keppnisliðins eru þeir sem mega æfa með keppnisliðinu og þeir hafa sömu mætingaskyldu á æfingarnar og keppnisliðið sjálft. Keppnisliðið eru þeir sem hafa formlega verið valdir til að keppa fyrir hönd félagsins á keppnum í MMA, BJJ og boxi og klæðast rauðum keppnisliðspeysum Mjölnis. Mjölnir styður vel við bakið á meðlimum keppnisliðsins og nýtur það ýmissa fríðinda og styrkja á vegum félagsins.

Þá munu öll CT liðin hittast ca. á tveggja mánaðarfresti til og borða saman eða gera annað til að efla samstöðuna.

Hér fyrir neðan má sjá nánari töflu með CT æfingunum og eru liðin sem eiga að mæta á æfingarnar í sviga fyrir aftan:

Mánudagar
13:10 Wrestling (BJJ og MMA)
18:00 (Box)

Þriðjudagar
18:00 MMA sparring (MMA)

Miðvikudagar
13:10 Striking (Box og MMA)
18:00 (Box)

Fimmtudagar
18:00 MMA drills (MMA)

Föstudagar
13:10 Þrek (Öll lið)
18:00 Sparring (Box)

Laugardagar
11:00 Glíma (BJJ)


MjölnirMjölnir MMA

Flugvallarvegur 3-3a
102 Reykjavík
Iceland

+354 534 4455
mjolnir@mjolnir.is

OPNUNARTÍMAR

Mánudagar, miðvikudagar og föstudagar: 06:15 - 22:00

Þriðjudagar og fimmtudagar: 07:00 - 22:00

Föstudagar: 06:15 - 20:00

Laugardagar: 08:45 - 15:00

Sunnudagar: 10:15 - 15:00

Æfingasalir loka samkvæmt stundatöflu þegar síðasta tíma lýkur en lyftingasalir eru opnir mán.-fim. til 22:00 (fös. 20:00).

Sauna, heiti- og kaldi pottur loka 15 min á undan skipulagðri lokun.

Skráning á póstlista

Svæði