ÚRSLIT Á ÍSLANDSMEISTARAMÓTINU Í BJJ 2016

ÚRSLIT Á ÍSLANDSMEISTARAMÓTINU Í BJJ 2016
Axel Kristinsson sigraði alla andstæðinga sína

Keppendur úr Mjölni unnu m.a. til átta gullverðlauna á Íslandsmeistaramótinu í brasilísku jiu-jitsu sem fór fram í Mjölniskastalanum um síðustu helgi en rúmlega sextíu keppendur frá fimm félögum voru skráðir til leiks. Alls unnu Mjölnismenn til 25 verðlauna á mótinu og var lang stigahæsta liðið með rúmlega tvöfalt fleiri stig en öll önnur lið til samans.

Þau Sighvatur Magnús Helgason og Ólöf Embla Kristinsdóttir voru sigurvegarar dagsins. Bæði unnu þau sína flokka og opnu flokkana. Hinn stórefnilegi Mjölnismaður Kristján Helgi Hafliðason fékk svo verðlaun fyrir uppgjafartak mótsins fyrir „baseball“ hengingu en Kristján Helgi fékk einmitt sömu verðlaun á Grettismótinu á dögunum fyrir sömu hengingu.

Hér má sjá öll verðlaunasætin á mótinu:

-64 kg flokkur kvenna

1. sæti: Ólöf Embla Kristinsdóttir (VBC)
2. sæti: Sunna Jóhannesdóttir (Mjölnir)

+64 kg flokkur kvenna

1. sæti: Hafdís Vera Emilsdóttir (Mjölnir)
2. sæti: Guðrún Björk Jónsdóttir (VBC)
3. sæti: Sóllilja Baltasardóttir (Mjölnir)

-64 kg flokkur karla

1. sæti: Axel Kristinsson (Mjölnir)
2. sæti: Gunnar Sigurðsson (VBC)
3. sæti: Bjarki Jóhannesson (Mjölnir)

-70 kg flokkur karla

1. sæti: Pétur Óskar Þorkelsson (Mjölnir)
2. sæti: Aron Elvar Jónsson (Mjölnir)
3. sæti: Marias Sigurðsson (Mjölnir)

-76 kg flokkur karla

1. sæti: Ómar Yamak (Mjölnir)
2. sæti: Kristján Einarsson (Mjölnir)
3. sæti: Hrafn Þráinsson (Mjölnir)

-82 kg flokkur karla

1. sæti: Bjarki Þór Pálsson (Mjölnir)
2. sæti: Aron Daði Bjarnason (Mjölnir)
3. sæti: Kristján Helgi Hafliðason (Mjölnir)

-88 kg flokkur karla

1. sæti: Daði Steinn Brynjarsson (VBC)
2. sæti: Nils Nowenstein (Mjölnir)
3. sæti: Óli Björn (Mjölnir)

-94 kg flokkur karla

1. sæti: Pétur Marinó Jónsson (Mjölnir)
2. sæti: Þórhallur Ragnarsson (Mjölnir)
3. sæti: Bjarki Pétursson (Mjölnir)

-100 kg flokkur karla

1. sæti: Sighvatur Magnús Helgason (Mjölnir)
2. sæti: Ýmir Vésteinsson (VBC)
3. sæti: Friðjón Ingi Sigurjónsson (Mjölnir)

+100 kg flokkur karla

1. sæti: Halldór Logi Valsson (Fenrir)
2. sæti: Brynjar Örn Ellertsson (Mjölnir)
3. sæti: Alexander Zakarías Pétursson (Mjölnir)

Opinn flokkur kvenna

1. sæti: Ólöf Embla Kristinsdóttir (VBC)
2. sæti: Guðrún Björk Jónsdóttir (VBC)
3. sæti: Sunna Jóhannsdóttir (Mjölnir)

Opinn flokkur karla

1. sæti: Sighvatur Magnús Helgason (Mjölnir)
2. sæti: Kristján Helgi Hafliðason (Mjölnir)
3. sæti: Marek Bujło (VBC)

Stig liða á mótinu

Mjölnir 106 stig
VBC 40 stig
Fenrir 9 stig
Gracie 0 stig
Sleipnir 0 stig

Sjá nánar um mótin á vef BJÍ.


MjölnirMjölnir MMA

Flugvallarvegur 3-3a
102 Reykjavík
Iceland

+354 534 4455
mjolnir@mjolnir.is

OPNUNARTÍMAR

Mánudagar, miðvikudagar og föstudagar: 06:15 - 22:00

Þriðjudagar og fimmtudagar: 07:00 - 22:00

Föstudagar: 06:15 - 20:00

Laugardagar: 08:45 - 15:00

Sunnudagar: 10:15 - 15:00

Æfingasalir loka samkvæmt stundatöflu þegar síðasta tíma lýkur en lyftingasalir eru opnir mán.-fim. til 22:00 (fös. 20:00).

Sauna, heiti- og kaldi pottur loka 15 min á undan skipulagðri lokun.

Skráning á póstlista

Svæði