Víkingaþrek

Víkingaþrek er æfingakerfi sem var upphaflega þróað til að byggja upp þrek, þol og styrk hjá fólki sem æfir bardagaíþróttir. Úr varð heildstætt æfingakerfi sem hentar öllum sem sækjast eftir skemmtilegri hreyfingu og vilja komast í frábært líkamlegt form. Með tímanum breikkaði hópur iðkenda og fjölbreytnin í Víkingaþrekinu jókst með. Í dag bjóðum við upp á krefjandi og skemmtilegt æfingakerfi sem bætir þol, byggir upp líkamlegan styrk og brennir óþarfa fitu með fjölbreyttum æfingum hjá úrvalsþjálfurum.

Æfingarnar eru hannaðar þannig að 40 mínútna tími nokkrum sinnum í viku er allt sem þarf til að fá næga hreyfingu, byggja upp þol og styrkja og móta líkamann. Unnið er með ketilbjöllur, líkamsþyngdaræfingar, högg og spörk í púða, kaðla, sleggjur og margt fleira. Í Víkingaþrekinu er lögð mikil áhersla á rétta tækni, góða líkamsbeitingu og krefjandi æfingar. Þetta skilar sér í hámarksárangri iðkanda sem komast í sitt allra besta form og halda því.

Þessir tímar eru opnir öllum þeim sem hafa lokið Víkingaþreki 101 eða eru með sambærilega reynslu (metið af yfirþjálfurum).

Við erum hér á Facebook: Mjölnir-Víkingaþrek

Markmið: Að iðkendur efli líkamlegan styrk og úthald í skemmtilegu og hvetjandi umhverfi.

Búnaður: Sá staðalbúnaður sem iðkendur þurfa að hafa með sér í tíma og seldir eru stakir og/eða í sérstökum byrjendapökkum í Óðinsbúð er eftirfarandi:

  • Íþróttaföt (mælt með stuttbuxum og stuttermabol eða hlýrabol, engir skór)

 Yfirþjálfari: Benedikt Karlsson

MjölnirMjölnir MMA

Flugvallarvegur 3-3a
102 Reykjavík
Iceland

+354 534 4455
mjolnir@mjolnir.is

OPNUNARTÍMAR

Mánudagar, miðvikudagar og föstudagar: 06:15 - 22:00

Þriðjudagar og fimmtudagar: 07:00 - 22:00

Föstudagar: 06:15 - 20:00

Laugardagar: 08:45 - 15:00

Sunnudagar: 10:15 - 15:00

Æfingasalir loka samkvæmt stundatöflu þegar síðasta tíma lýkur en lyftingasalir eru opnir mán.-fim. til 22:00 (fös. 20:00).

Sauna, heiti- og kaldi pottur loka 15 min á undan skipulagðri lokun.

Skráning á póstlista

Svæði