Shortcuts
MMA 201
MMA 201 tímarnir eru ætlaðir þeim sem vilja komast í MMA keppnislið Mjölnis en skortir kannski tæknilega færni og fyrir þá sem vilja mæta á MMA æfingar án þess að hafa það endilega að markmiði að keppa í íþróttinni. Þannig verða 201 tímarnir góð brú úr MMA 101 og öðrum grunnnámskeiðum og yfir í keppnisliðs æfingar.
Mesta áherslan er lögð á tæknilega þjálfun og verður ekkert um hart sparr. Til að sækja tímana er nauðsynlegt að hafa lokið MMA 101 eða BJJ 101+Box/Kickbox 101 eða öðrum sambærilegum grunni.
Búnaður: Sá staðalbúnaður sem iðkendur þurfa að hafa með sér í tíma og seldir eru stakir í Óðinsbúð er eftirfarandi:
- MMA sparr hanskar
- Legghlífar
- Gómur
Hvenær: Á þriðjudögum og fimmtudögum kl. 20 í Þórssal
Þjálfarar: Hrólfur Ólafsson, Sunna Rannveig Davíðsdóttir, Bjarki Ómarsson, Björn Lúkas Haraldsson, Valentin Fels og Bjarki Eyþórsson.