AÐALFUNDUR MJÖLNIS 27. ÁGÚST

Aðalfundur íþróttafélagsins Mjölnis verður haldinn sunnudaginn 27. ágúst kl. 15:00 í húsnæði Mjölnis að Flugvallarvegi 3-3a. Aðeins félagar sem hafa verið meðlimir samfleytt að lágmarki 12 mánuði fyrir aðalfund og hafa náð 20 ára aldri hafa atkvæðarétt á aðalfundi.

Kjörgengnir til stjórnarembætta eru almennir félagsmenn sem hafa verið meðlimir samfleytt að lágmarki 24 mánuði fyrir aðalfund. Kjörgengnir til embættis formanns stjórnar eru þó aðeins félagsmenn sem hafa verið meðlimir samfleytt að lágmarki 36 mánuði fyrir aðalfund og hafa náð 25 ára aldri. Framboð til stjórnarsetu og tillögur til lagabreytinga skulu hafa borist stjórn ekki síðar en viku fyrir aðalfund og sendist á netfangið mjolnir@mjolnir.is. Að öðru leyti vísast til laga Mjölnis.


MjölnirMjölnir MMA

Flugvallarvegur 3-3a
102 Reykjavík
Iceland

+354 534 4455
mjolnir@mjolnir.is

OPNUNARTÍMAR

Mánudagar, miðvikudagar og föstudagar: 06:15 - 22:00

Þriðjudagar og fimmtudagar: 07:00 - 22:00

Föstudagar: 06:15 - 20:00

Laugardagar: 08:45 - 15:00

Sunnudagar: 10:15 - 15:00

Æfingasalir loka samkvæmt stundatöflu þegar síðasta tíma lýkur en lyftingasalir eru opnir mán.-fim. til 22:00 (fös. 20:00).

Sauna, heiti- og kaldi pottur loka 15 min á undan skipulagðri lokun.

Skráning á póstlista

Svæði