ÆSIR OG MJÖLNIR Í SAMSTARF - VILHJÁLMUR HERNANDEZ NÝR YFIRÞJÁLFARI Í BOXI

ÆSIR OG MJÖLNIR Í SAMSTARF - VILHJÁLMUR HERNANDEZ NÝR YFIRÞJÁLFARI Í BOXI
Gunnar Nelson og Vilhjálmur Hernandez

Mjölnir og hnefaleikafélagið Æsir hafa ákveðið að sameina krafta sína og ganga til samstarfs um hnefaleikaþjálfun í Mjölni en Gunnar Nelson, formaður Mjölnis, og Vilhjálmur Hernandez, yfirþjálfari Æsis, hafa undirritað samkomulag þess efnis.

Æsir mun því framvegis sjá um hnefaleikaþjálfun í ólympískum hnefaleikum í Mjölni og Vilhjálmur Hernandez verður nýr yfirþjálfari hnefaleika en Vilhjálmur er einn reyndasti hnefaleikaþjálfari hér á landi. Vilhjálmur hlaut um síðustu helgi heiðursverðlaun Hnefaleikasambands Íslands fyrir störf sín í þágu hnefaleika síðustu 15 árin. Það er því mikill heiður að fá hann til að annast yfirþjálfun hnefaleika hér í Mjölni.

Æsir hefur fram því snemma á öldinni verið eitt sigursælasta hnefaleikafélag landsins og staðið fyrir hnefaleikaþjálfun allt frá stofnun þess. Síðasta árið hefur félagið hins vegar verið húsnæðislaust og starf þess því legið að mestu niðri. Við í Mjölni erum afar ánægð að fá Æsi og Vilhjálm til samstarfs við okkur og berum miklar vonir til framtíðarinnar og samvinnunnar við hann og Æsi.

Auk þessa eru Mjölnir og Æsir í viðræðum við erlendan þjálfara með mikla reynslu um að koma og þjálfa í Mjölni en þau mál skýrast eftir áramót. 

 Það þótti við hæfi að undirritað samninginn í boxhringnum  Villi og Gunni með samninginn
 Það þótti við hæfi að undirrita samninginn í boxhringnum
Villi og Gunni eftir undirritun
Feðgarnir Kristófer Aron Vilhjálmsson, Gunnar Nelson, Vilhjálmur Hernandez og Haraldur Dean Nelson Æsir
Feðgarnir Kristófer Aron Vilhjálmsson, Gunnar Nelson, Vilhjálmur Hernandez og Haraldur Dean Nelson
 

MjölnirMjölnir MMA

Flugvallarvegur 3-3a
102 Reykjavík
Iceland

+354 534 4455
mjolnir@mjolnir.is

OPNUNARTÍMAR

Mánudagar, miðvikudagar og föstudagar: 06:15 - 22:00

Þriðjudagar og fimmtudagar: 07:00 - 22:00

Föstudagar: 06:15 - 20:00

Laugardagar: 08:45 - 15:00

Sunnudagar: 10:15 - 15:00

Æfingasalir loka samkvæmt stundatöflu þegar síðasta tíma lýkur en lyftingasalir eru opnir mán.-fim. til 22:00 (fös. 20:00).

Sauna, heiti- og kaldi pottur loka 15 min á undan skipulagðri lokun.

Skráning á póstlista

Svæði