BJJ FYRIR 35 ÁRA OG ELDRI - SKRÁNING Í GANGI NÚNA

BJJ FYRIR 35 ÁRA OG ELDRI - SKRÁNING Í GANGI NÚNA
BBJ 35+

BJJ 101 fyrir 35 ára og eldri er nýtt námskeið sem hefst þann 8. janúar. Brasilískt jiu-jitsu er frábær líkamsrækt og er fátt sem jafnast á við það að glíma í góðra vina hópi. Íþróttin er ekki bara fyrir fólkið í yngri kantinum heldur getur fólk glímt á öllum aldri. Fólk á ólíkum aldri hefur þó ólíkar þarfir og það getur verið erfitt að glíma við einhvern ærslafullan sem er kannski 15 árum yngri.

Námskeiðið er lengra en venjuleg grunnnámskeið í BJJ og inn í því er einnig einn tími á viku í Goðaaflinu. Í Goðaaflinu er lögð sérstök áhersla á að styrkja alla liði, bak og miðju og passar það því afar vel með glímunni. Þarna ertu komin með frábæra blöndu; þrek, brennslu og styrktarþjálfun sem hugar að þessum litlu vöðvum sem við sjaldnast hugsum um.

Ef þú vilt prófa glímuna getur þú skráð þig hér:
https://www.mjolnir.is/…/hvad-e…/brazilian-jiu-jitsu/bjj-101


MjölnirMjölnir MMA

Flugvallarvegur 3-3a
102 Reykjavík
Iceland

+354 534 4455
mjolnir@mjolnir.is

OPNUNARTÍMAR

Mánudagar, miðvikudagar og föstudagar: 06:15 - 22:00

Þriðjudagar og fimmtudagar: 07:00 - 22:00

Föstudagar: 06:15 - 20:00

Laugardagar: 08:45 - 15:00

Sunnudagar: 10:15 - 15:00

Æfingasalir loka samkvæmt stundatöflu þegar síðasta tíma lýkur en lyftingasalir eru opnir mán.-fim. til 22:00 (fös. 20:00).

Sauna, heiti- og kaldi pottur loka 15 min á undan skipulagðri lokun.

Skráning á póstlista

Svæði