BJÖLLULÁN TIL MEÐLIMA MJÖLNIS

BJÖLLULÁN TIL MEÐLIMA MJÖLNIS
Ketilbjöllur
Þar sem Mjölnir verður lokaður til og með a.m.k. 17. nóvember ætlum við enn og aftur að lána ketilbjöllur til meðlima. Bjölluleigan verður opin frá kl. 10:00 til 13:00 á þriðjudag og miðvikudag og svo kl. 11-13 á föstudaginn. Lokað er á fimmtudaginn. Leigan er aðeins fyrir þá sem eru með virka áskrift í Mjölni.
 
Ekki er hægt að taka frá bjöllur og gildir reglan „fyrstir koma, fyrstir fá.“ Aðeins er hægt að fá eina bjöllu á mann og þarf að skila bjöllunni um leið og Mjölnir getur opnað. Ef búnaður hefur ekki borist í hús 48 klukkustundum eftir auglýsta opnun þarf viðkomandi að greiða gjald fyrir sein skil. Hægt er að sækja bjöllu fyrir aðra meðlimi en þá þarf að vera með réttar upplýsingar hjá viðkomandi (nafn, kennitala, símanúmer og email).
 
Ábyrgð og áhætta á búnaði færist yfir á viðskiptavini þegar búnaður fer út fyrir Mjölni og mun viðskiptavinur eftir það vera ábyrgur fyrir tjóni og skemmdum á búnaði, einnig ef búnaður glatast.
 
Við viljum biðja alla sem koma að mæta með grímur og virða fjölda- og fjarlægðatakmarkanir. Allir þurfa að skrifa undir leiguskilmála í móttöku við komu í húsið.

MjölnirMjölnir MMA

Flugvallarvegur 3-3a
102 Reykjavík
Iceland

+354 534 4455
mjolnir@mjolnir.is

OPNUNARTÍMAR

Mánudagar, miðvikudagar og föstudagar: 06:15 - 22:00

Þriðjudagar og fimmtudagar: 07:00 - 22:00

Föstudagar: 06:15 - 20:00

Laugardagar: 08:45 - 15:00

Sunnudagar: 10:15 - 15:00

Æfingasalir loka samkvæmt stundatöflu þegar síðasta tíma lýkur en lyftingasalir eru opnir mán.-fim. til 22:00 (fös. 20:00).

Sauna, heiti- og kaldi pottur loka 15 min á undan skipulagðri lokun.

Skráning á póstlista

Svæði