GUNNAR NELSON GERIR NÝJAN SAMNING VIÐ UFC

GUNNAR NELSON GERIR NÝJAN SAMNING VIÐ UFC
Gunnar skrifar undir nýjan UFC samning

Gunnar Nelson hefur skrifað undir nýjan samning við UFC. Að sögn Haraldar Dean Nelson föður Gunnars og umboðsmanns óskaði UFC að fyrra bragði eftir því að gera nýjan samning við Gunnar sem átti einn bardaga eftir á gamla samningnum sínum.  „Þetta er fimm bardaga samningur sem tekur gildi strax þannig að síðasti bardagi á gamla samningnum fellur niður og má kannski segja að sé fyrsti bardaginn á nýja samningnum. Við vissum af áhuga fleiri bardagasamtaka á því að semja við Gunnar og UFC hefur að öllum líkindum vitað af því líka og viljað tryggja samning við Gunnar áfram,“ segir Haraldur.

Sjálfur segist Gunnar aldrei hafa hugleitt af neinni alvöru að semja við aðra en UFC en þar segir hann margt koma til, ekki síst öflug lyfjapróf innan UFC sem ekki séu til staðar hjá öðrum samtökum. „UFC eru einfaldlega lang stærsta og öflugasta MMA keppnin í heiminum í dag og lyfjaprófin skipta að mínu mati gríðarlega miklu máli,“ segir Gunnar. „Við vissum af áhuga annarra MMA samtaka en meðan lyfjapróf þeirra eru lítil eða engin komu aðrir bara ekki til greina. Ég hef áður sagt að ég muni aldrei taka nein ólögleg lyf og ef það er forsenda fyrir því að vera í fremstu röð þá mun ég hætta. Ég er mjög sáttur við að vera bara faðir og þjálfari ef út í það er farið. Ég hef fundið það á síðustu árum hvernig þjálfun í Mjölni gefur mér alltaf meira og meira og sé framtíð mína svo sannarlega við þjálfun þegar keppnisferli lýkur. Og ef honum lyki á morgun þá væri það bara allt í lagi. Það er hins vegar ekki stefnan alveg strax og nú er nýr samningur við UFC í höfn og ég er mjög sáttur,“ segir Gunnar sem keppti síðast í lok september 2019 en þess má geta að tveir síðustu andstæðingar hans eru númer 2 og 3 á heimslistanum. „Ég er nýlega stiginn uppúr Covid og er svona að byrja æfingar aftur. Nú er bara að koma sér í almennilegt keppnisform og vonandi getum við tilkynnt næsta bardaga á næstu dögum eða vikum,“ segir Gunnar að lokum.


MjölnirMjölnir MMA

Flugvallarvegur 3-3a
102 Reykjavík
Iceland

+354 534 4455
mjolnir@mjolnir.is

OPNUNARTÍMAR

Mánudagar, miðvikudagar og föstudagar: 06:15 - 22:00

Þriðjudagar og fimmtudagar: 07:00 - 22:00

Föstudagar: 06:15 - 20:00

Laugardagar: 08:45 - 15:00

Sunnudagar: 10:15 - 15:00

Æfingasalir loka samkvæmt stundatöflu þegar síðasta tíma lýkur en lyftingasalir eru opnir mán.-fim. til 22:00 (fös. 20:00).

Sauna, heiti- og kaldi pottur loka 15 min á undan skipulagðri lokun.

Skráning á póstlista

Svæði