HELJARÞRAUT V - ÚRSLIT

HELJARÞRAUT V - ÚRSLIT
Heljarþraut V
Heljarþraut V fór fram síðasta laugardag. Þetta var stærsta þrekmót sem Mjölnir hefur haldið og ætlaði þakið að rifna af húsinu þegar mest lét.
 
35 lið frá 7 klúbbum tóku þátt og mátti sjá geggjuð tilþrif, persónulegar bætingar og gríðarlegt keppnisskap. Í kvennaflokki unnu Heiða Norðkvist og Selma Kristín, í blönduðum flokki báru Alex Daði og Birta Líf sigur úr býtum og í karlaflokki fóru Ingimar Jónsson og Sigurður Hafsteinn Jónsson með sigur af hólmi🏆
 
Þökkum keppendum kærlega fyrir frábæra keppni, áhorfendum fyrir þessa mögnuðu stemningu og sjálfboðaliðum fyrir vel unnin störf. Þökkum einnig styrktaraðilum mótsins Altis, Óðinsbúð, KeyNatura og DEIG fyrir veglega vinninga. Einnig fær Böðvar Tandri sérstakt hrós fyrir frábært skipulag á mótinu. 
 
Fleiri myndir af mótinu má finna á Facebooksíðu Mjölnis

MjölnirMjölnir MMA

Flugvallarvegur 3-3a
102 Reykjavík
Iceland

+354 534 4455
mjolnir@mjolnir.is

OPNUNARTÍMAR

Mánudagar, miðvikudagar og föstudagar: 06:15 - 22:00

Þriðjudagar og fimmtudagar: 07:00 - 22:00

Föstudagar: 06:15 - 20:00

Laugardagar: 08:45 - 15:00

Sunnudagar: 10:15 - 15:00

Æfingasalir loka samkvæmt stundatöflu þegar síðasta tíma lýkur en lyftingasalir eru opnir mán.-fim. til 22:00 (fös. 20:00).

Sauna, heiti- og kaldi pottur loka 15 min á undan skipulagðri lokun.

Skráning á póstlista

Svæði