HERTAR INNLANDSREGLUR VEGNA AUKINNA COVID SMITA

HERTAR INNLANDSREGLUR VEGNA AUKINNA COVID SMITA
Covid

Ný reglugerð heilbrigðisráðuneytisins um hertar innanlandsaðgerðir vegna mikillar fjölgunar covid smita tekur gildi á morgun, 10. nóvember. Hún mun þó hafa lítil áhrif í Mjölni þar sem nú þegar eru uppi þær smitvarnir sem farið er fram á í reglugerðinni. Við hvetjum iðkendur þó til að rifja upp reglur Mjölnis um sóttvarnir.

Helstu breytingar grímunotkun í almenningsrýmum þar sem ekki er hægt að halda 1 metra nándarreglu og almennar fjöldatakmarkanir verða 500 manns.  Á sitjandi viðburðum er heimilt að víkja frá eins metra nálægðarreglu meðan setið er, að því gefnu að allir beri grímu og allt að 1500 manns mega koma saman ef notast er við svokallað hraðpróf. Líkt og áður eru íþróttaæfinga og keppnir með og án snertingar leyfðar. Við hvetjum iðkendur okkar til að kynna sér reglugerðina sem er hér að neðan sem og  reglur Mjölnis um sóttvarnir líkt og áður segir. Meðan að ástandið er svona hvetjum við til að farið sé eftir þeirri reglu á æfingum að skipt sé í pör eða litla hópa og einungis æft innan hvers hóps til að lágmarka nálægð og samgang. Jafnframt eiga allir að hafa sinn æfingabúnað (galli, boxhanskar eða annar hefðbundinn íþróttafatnaður) og drykkjarbrúsa og að óheimilt er að deila búnaði með öðrum. Þá minnum við alla á að sótthreinsa allan æfingabúnað bæði fyrir og eftir notkun. Einnig hvetjum við þá iðkendur sem geta að fara í sturtu heima hjá sér til að lágmarka umferð um búningsklefana eins og hægt er meðan verið er að ná niður tíðni smita í samfélaginu. Líkt og áður förum við saman í gegnum þetta og erum þakklát fyrir að fá að halda nokkurn veginn óskertri starfsemi.

UPPFÆRT 12. NÓVEMBER:
NÝ REGLUGERÐ TEKUR GILDI 13. NÓVEMBER, SJÁ NÝJA FRÉTT Á VEF MJÖLNIS UM NÝJAR AÐGREÐIR HEILBRIGÐISYFIRVALDA.


MjölnirMjölnir MMA

Flugvallarvegur 3-3a
102 Reykjavík
Iceland

+354 534 4455
mjolnir@mjolnir.is

OPNUNARTÍMAR

Mánudagar, miðvikudagar og föstudagar: 06:15 - 22:00

Þriðjudagar og fimmtudagar: 07:00 - 22:00

Föstudagar: 06:15 - 20:00

Laugardagar: 08:45 - 15:00

Sunnudagar: 10:15 - 15:00

Æfingasalir loka samkvæmt stundatöflu þegar síðasta tíma lýkur en lyftingasalir eru opnir mán.-fim. til 22:00 (fös. 20:00).

Sauna, heiti- og kaldi pottur loka 15 min á undan skipulagðri lokun.

Skráning á póstlista

Svæði