INGA BIRNA MEÐ BRONS Í KÖBEN

INGA BIRNA MEÐ BRONS Í KÖBEN
Inga Birna lenti í þriðja sæti í opnum flokki

Inga Birna Ársælsdóttir styrktarþjálfari í Mjölni tók þá í Copenhagen Open í brasilísku jiu-jitsu um helgina. Hún var ein í sínum þyngdarflokki í flokki keppenda í gi (galla) með fjólublátt belti og keppti því einnig í opnum flokki þar sem hún vann til bronsverðlauna.

Inga Birna komst í undanúrslit eftir að hafa sigrað andstæðing sem hún tapaði fyrir á Nordic Open í vor. Með sigrinum tryggði hún sér þriðja sætið en tapaði síðan undanúrslitunum.

Í nogi (án galla) tapaði Inga Birna tvisvar fyrir sama andstæðingi, fyrst í sínum þyngdarflokki og svo einnig í opnum flokki.

Við óskum Ingu Birnu innilega til hamingju með bronsverðlaunin.


MjölnirMjölnir MMA

Flugvallarvegur 3-3a
102 Reykjavík
Iceland

+354 534 4455
mjolnir@mjolnir.is

OPNUNARTÍMAR

Mánudagar, miðvikudagar og föstudagar: 06:15 - 22:00

Þriðjudagar og fimmtudagar: 07:00 - 22:00

Föstudagar: 06:15 - 20:00

Laugardagar: 08:45 - 15:00

Sunnudagar: 10:15 - 15:00

Æfingasalir loka samkvæmt stundatöflu þegar síðasta tíma lýkur en lyftingasalir eru opnir mán.-fim. til 22:00 (fös. 20:00).

Sauna, heiti- og kaldi pottur loka 15 min á undan skipulagðri lokun.

Skráning á póstlista

Svæði