MJÖLNIR OG HÁSKÓLINN Í REYKJAVÍK Í SAMSTARF

MJÖLNIR OG HÁSKÓLINN Í REYKJAVÍK Í SAMSTARF
Undirritun samningsins

Mjölnir og Háskólinn í Reykjavík hafa gert með sér tveggja ára samstarfssamning sem snýr að rannsóknum á líkamlegri getu, hreyfifærni og sálfræðilegum þáttum hjá keppnisfólki í félaginu. Mjölnir er fyrsta íþróttafélag landsins til að gera samning af þessu tagi við háskólann en félagið mun m.a. veita meistaranema við HR í íþróttavísindum og þjálfun styrk meðan á rannsókninni stendur.

Haraldur Dean Nelson framkvæmdastjóri Mjölnis segir félagið mjög stolt af samstarfinu við Háskólann í Reykjavík og vonast til að þetta verði aðeins fyrstu skrefin að mörgum í samstarfi Mjölnis við háskólann. "Við stóðum m.a. nýlega fyrir afar vel sóttum almennum fræðslufundi um heila­hrist­ing í íþrótt­um, viðbrögð og mögu­leg­ar af­leiðing­ar og vorum fyrsta íþróttafélagið til að gera slíkt. Við höfum einnig fengið sérfræðinga til að fjalla um lyfjamál og fleira við okkar afreksfólk. Markmiðið er að standa reglulega að fræðslufundum í samstarfi við fagaðila um hin ýmsu málefni sem snúa að íþróttum og þjálfun og þetta samstarf styrkir okkur í Mjölni í því að taka eins faglega á málum og okkur er unnt.

Hafrún Kristjánsdóttir sviðstjóri íþróttafræðisviðs Háskólans í Reykjavík tekur undir orða Haraldar. "Við í HR erum mjög ánægð með þennan samning við nágranna okkar í Mjölni. Við hlökkum til að hjálpa keppnisliði Mjölnis að ná enn lengra með því tengja íþróttavísindi á enn öflugri hátt við þjálfun keppnisliðsins en áður hefur verið gert.  Þessi samningur lýsir vel metnaði Mjölnis að standa faglega að allri þjálfun afreksmanna," segir Hafrún.

Meðfylgjandi myndvar tekin við undirritun samningsins en þar eru frá vinstri: Ingunn S. Unnsteinsdóttir Kristensen aðst.framkv.stjóri Mjölnis, Haraldur Dean Nelson framkvæmdastjóri Mjölnis, Hafrún Kristjánsdóttir sviðstjóri íþróttafræðisviðs HR og Davíð Már Sigurðsson meistaranemi í íþróttavísindum og þjálfun við HR.

MjölnirMjölnir MMA

Flugvallarvegur 3-3a
102 Reykjavík
Iceland

+354 534 4455
mjolnir@mjolnir.is

OPNUNARTÍMAR

Mánudagar, miðvikudagar og föstudagar: 06:15 - 22:00

Þriðjudagar og fimmtudagar: 07:00 - 22:00

Föstudagar: 06:15 - 20:00

Laugardagar: 08:45 - 15:00

Sunnudagar: 10:15 - 15:00

Æfingasalir loka samkvæmt stundatöflu þegar síðasta tíma lýkur en lyftingasalir eru opnir mán.-fim. til 22:00 (fös. 20:00).

Sauna, heiti- og kaldi pottur loka 15 min á undan skipulagðri lokun.

Skráning á póstlista

Svæði