SIGUR OG TAP HJÁ SINDRA OG ELMARI Í NOREGI

SIGUR OG TAP HJÁ SINDRA OG ELMARI Í NOREGI
Sindri og Elmar Box

Um helgina börðust þeir Elmar Gauti Halldórsson og Sindri Snorrason á boxkvöldi í Noregi. Strákarnir koma heim með einn sigur og eitt tap.

Bardagarnir fóru fram á The Homecoming boxkvöldinu í Bergen í gær en báðir voru þeir að keppa áhugamannabardaga. Þrír síðustu bardagar kvöldsins voru atvinnubardagar þar sem meðal annars var barist um Evróputitla IBA og WBO. 

Elmar Gauti var í fyrsta bardaga kvöldsins en hann mætti Dennis Hofstad. Elmar tapaði naumlega eftir klofna dómaraákvörðun gegn reynslumiklum andstæðingi en niðurstaða dómaranna vakti undrun. Sindri Snorrason mætti Kristoffer Fredriksen og sótti verðskuldaðan sigur eftir dómaraákvörðun. Sindri er aðeins búinn að æfa box í rúmt ár og hefur hann því tekið miklum framförum á skömmum tíma. 

Strákarnir koma heim reynslunni ríkari en báðir stefna þeir á að keppa mikið á þessu ári.


MjölnirMjölnir MMA

Flugvallarvegur 3-3a
102 Reykjavík
Iceland

+354 534 4455
mjolnir@mjolnir.is

OPNUNARTÍMAR

Mánudagar, miðvikudagar og föstudagar: 06:15 - 22:00

Þriðjudagar og fimmtudagar: 07:00 - 22:00

Föstudagar: 06:15 - 20:00

Laugardagar: 08:45 - 15:00

Sunnudagar: 10:15 - 15:00

Æfingasalir loka samkvæmt stundatöflu þegar síðasta tíma lýkur en lyftingasalir eru opnir mán.-fim. til 22:00 (fös. 20:00).

Sauna, heiti- og kaldi pottur loka 15 min á undan skipulagðri lokun.

Skráning á póstlista

Svæði