SJÁLFSVARNARNÁMSKEIÐ FYRIR KONUR

SJÁLFSVARNARNÁMSKEIÐ FYRIR KONUR
Sunna kennir sjálfsvarnarnámskeið

Í apríl fer fram 5 vikna sjálfsvarnarnámskeið fyrir konur sem Mjölnir heldur í samvinnu við Bjarkarhlíð (miðstöð fyrir þolendur ofbeldis) og Lögregluna á höfuðborgarsvæðinu. Á námskeiðinu verður farið í helstu varnir úr brasilísku jiu-jitsu og boxi sem nýtast í sjálfsvörn. Meðal þess sem farið er yfir er vörn gegn höggum, hvernig á að losa grip, hvernig á að sleppa undan ef einhver kemst ofan á og önnur tök og varnir sem henta í sjálfsvörn.

Eins og fram kom er námskeiðið haldið í samvinnu við Bjarkarhlíð og Lögregluna á höfuðborgarsvæðinu en fulltrúar frá þeim munum vera með fræðslu á námskeiðinu. Þá verður einn tími fyrir slökun, yoga og öndunaræfingar.

Hvenær: Mánudaga og miðvikudaga kl. 19:15. Hefst 9. apríl (5 vikur)

Þjálfarar: Sunna Rannveig Davíðsdóttir og fleiri.

UPPFÆRT: Uppselt er á námskeiðið í apríl. Næsta námskeið hefst 14. maí. Skráning hér að neðan.

 

Skráning á námskeið

 


MjölnirMjölnir MMA

Flugvallarvegur 3-3a
102 Reykjavík
Iceland

+354 534 4455
mjolnir@mjolnir.is

OPNUNARTÍMAR

Mánudagar, miðvikudagar og föstudagar: 06:15 - 22:00

Þriðjudagar og fimmtudagar: 07:00 - 22:00

Föstudagar: 06:15 - 20:00

Laugardagar: 08:45 - 15:00

Sunnudagar: 10:15 - 15:00

Æfingasalir loka samkvæmt stundatöflu þegar síðasta tíma lýkur en lyftingasalir eru opnir mán.-fim. til 22:00 (fös. 20:00).

Sauna, heiti- og kaldi pottur loka 15 min á undan skipulagðri lokun.

Skráning á póstlista

Svæði