NÁMSKEIÐ Í SJÁLFSVÖRN OG SJÁLFSSTYRKINGU FYRIR KONUR - UPPSELT

NÁMSKEIÐ Í SJÁLFSVÖRN OG SJÁLFSSTYRKINGU FYRIR KONUR - UPPSELT
Sjálfsvarnarnámskeið fyrir konur

Í ágúst fer fram 6 vikna námskeið fyrir konur í sjálfsvörn og sjálfsstyrkingu sem Mjölnir heldur í samstarfi við Bjarkarhlíð (miðstöð fyrir þolendur ofbeldis) og Lögregluna á höfuðborgarsvæðinu. Fjölmargir aðilar hafa aðkomu að því að leiðbeina á námskeiðinu en Sunna Rannveig Davíðsdóttir bardagakona hefur yfirumsjón með því. Það er afar nærtækt að Sunna leiði námskeiðið þar sem hún byrjaði upphaflega að æfa bardagaíþróttir til að geta varið sjálfa sig og þessi málaflokkur hefur lengi verið henni hugleikinn.

Á námskeiðinu, sem er tvisvar í viku í sex vikur, er hvort tveggja horft á líkamlega þáttinn og einnig andlega þáttinn. Allt frá því að greina hættuna og að vinna upp kjark til að takast á við hana yfir i að hafa vitund um hver úrræðin eru. Á námskeiðinu er farið í ýmsa tækni sem nýtist við sjálfsvörn og sjálfsstyrkingu. M.a. verður farið í varnir gegn höggum, hvernig á að losa grip, hvernig hægt er að sleppa undan ef einhver kemst ofan á og ýmis önnur tök og tækni til sjálfsvarnar.

Eins og fram kom er námskeiðið haldið í samvinnu við Bjarkarhlíð og Lögregluna á höfuðborgarsvæðinu en fulltrúar frá þeim munum vera með fræðslu á námskeiðinu. Þá verður einn tími fyrir slökun, yoga og öndunaræfingar.

Hvenær: Mánudaga og miðvikudaga kl. 19:15. Hefst miðvikudaginn 13. ágúst (6 vikur)

Þjálfarar: Sunna Rannveig Davíðsdóttir og fleiri.

Skráning hér að neðan.

Ath. að því miður er UPPSELT á þetta námskeið. Næsta námskeið er í október.

 

Skráning á námskeið

 


MjölnirMjölnir MMA

Flugvallarvegur 3-3a
102 Reykjavík
Iceland

+354 534 4455
mjolnir@mjolnir.is

OPNUNARTÍMAR

Mánudagar, miðvikudagar og föstudagar: 06:15 - 22:00

Þriðjudagar og fimmtudagar: 07:00 - 22:00

Föstudagar: 06:15 - 20:00

Laugardagar: 08:45 - 15:00

Sunnudagar: 10:15 - 15:00

Æfingasalir loka samkvæmt stundatöflu þegar síðasta tíma lýkur en lyftingasalir eru opnir mán.-fim. til 22:00 (fös. 20:00).

Sauna, heiti- og kaldi pottur loka 15 min á undan skipulagðri lokun.

Skráning á póstlista

Svæði