TAP HJÁ KÁRA Í LONDON

Kári Jóhannesson (1-1 fyrir bardagann) barðist á Ambition Fight Series fyrr í kvöld. Kári mætti Jonas Grace (3-2 fyrir bardagann) í veltivigt.

Grace var töluvert hærri en Kári og pressaði Kára upp að búrinu snemma. Þar lét hann nokkur góð hné vaða í skrokkinn á Kára en Kári snéri stöðunni við og ýtti Grace upp að búrinu. Þar reyndi Kári fellu en Grace greip um hálsinn með löngum handleggjum sínum og læsti „guillotine“ hengingu. Kári barðist eins og hann gat til að losna undan hengingunni en Grace skipti yfir í D’Arce hengingu og þurfti Kári að lokum að tappa út eftir 1:24 í 1. lotu.

Fleiri Íslendingar börðust þetta kvöld en nánar má lesa um þá bardaga á vef MMA Frétta hér.


MjölnirMjölnir MMA

Flugvallarvegur 3-3a
102 Reykjavík
Iceland

+354 534 4455
mjolnir@mjolnir.is

OPNUNARTÍMAR

Mánudagar, miðvikudagar og föstudagar: 06:15 - 22:00

Þriðjudagar og fimmtudagar: 07:00 - 22:00

Föstudagar: 06:15 - 20:00

Laugardagar: 08:45 - 15:00

Sunnudagar: 10:15 - 15:00

Æfingasalir loka samkvæmt stundatöflu þegar síðasta tíma lýkur en lyftingasalir eru opnir mán.-fim. til 22:00 (fös. 20:00).

Sauna, heiti- og kaldi pottur loka 15 min á undan skipulagðri lokun.

Skráning á póstlista

Svæði