VALGERÐUR KEPPIR Í KANADA

Valgerður keppir sinn níunda atvinnubardaga í boxi nú á laugardaginn hjá Eye of the Tiger promotions.

Valgerður mætir þá Leila Beaudoin (7-0) á heimavelli Beaudoin í Kanada. Valgerður er eina íslenska konan sem keppir sem atvinnumaður í boxi og er með ferilinn 5-3 (1 rothögg) í atvinnubardögum.

Bardaginn er í beinni útsendingu á ESPN+ en á Íslandi er hægt að horfa á streymi hér. Boxkvöldið hefst kl. 19 á staðartíma eða á miðnætti á íslenskum tíma en bardagi Valgerðar er sá fyrsti af átta á kvöldinu sem inniheldur meðal annars þrjá titilbardaga. Vigtunin fór fram í dag en bardaginn er háður í súper fjaðurvigt (59,4 kg). ÁFRAM VALGERÐUR!


MjölnirMjölnir MMA

Flugvallarvegur 3-3a
102 Reykjavík
Iceland

+354 534 4455
mjolnir@mjolnir.is

OPNUNARTÍMAR

Mánudagar, miðvikudagar og föstudagar: 06:15 - 22:00

Þriðjudagar og fimmtudagar: 07:00 - 22:00

Föstudagar: 06:15 - 20:00

Laugardagar: 08:45 - 15:00

Sunnudagar: 10:15 - 15:00

Æfingasalir loka samkvæmt stundatöflu þegar síðasta tíma lýkur en lyftingasalir eru opnir mán.-fim. til 22:00 (fös. 20:00).

Sauna, heiti- og kaldi pottur loka 15 min á undan skipulagðri lokun.

Skráning á póstlista

Svæði