Flýtilyklar
Víkingaþrek 101
Víkingaþrek 101 er grunnnámskeið þar sem farið er í undirstöðuatriði í æfingakerfi Víkingaþreksins.
Á námskeiðinu er markvisst unnið að því að byggja upp aukið úthald og efla líkamsstyrk. Æfingakerfið samanstendur af ýmsum líkamsþyngdaræfingum, ketilbjölluæfingum, lyftingatækni og bardagaþreksæfingum svo eitthvað sé nefnt.
Sjá einnig: VÍKINGAÞREK - HRAÐFERÐ
Að loknu námskeiði fá iðkendur tveggja vikna aðgang að hefðbundnum Víkingaþreksæfingum en að þeim vikum loknum greiða þeir sem vilja halda áfram æfingagjöld samkvæmt verðskrá.
Næstu Víkingaþreks námskeið:
- 5. júní: Hefðbundið grunnnámskeið í Víkingaþreki sem stendur yfir í þrjár vikur á mánudögum, miðvikudögum kl. 19:15 og föstudögum kl. 18:15 í Hel með innifaldri bardagaþreks kennslu á laugardögum kl.11:00 í Þórssal (2 vikur í Mjölni fylgja eftir námskeiðið).
Innifalið í grunnnámskeiði: Innifalið í verði námskeiðsins eru þrjár vikur í Mjölni eftir að grunnnámskeiði lýkur þar sem iðkendur geta mætt í venjulega Víkingaþrekstíma. Einnig aðgangur Gryfjunni og Útgarði (lyftingaraðstaða Mjölnis) og að tímum í yoga og Goðaafli.
Mikilvægt er að allir iðkendur fari eftir og virði reglur félagsins sem eru aðgengilegar hér á vefnum.
Við erum hér á Facebook: Mjölnir-Víkingaþrek
Markmið: Að iðkendur læri rétta líkamsbeitingu við framkvæmd æfinga og nái góðu valdi á meðhöndlun ketilbjalla.
Búnaður: Sá staðalbúnaður sem iðkendur þurfa að hafa með sér í tíma og seldir eru stakir og/eða í sérstökum byrjendapökkum í Óðinsbúð er eftirfarandi:
- íþróttaföt (mælt með stuttbuxum/æfingabuxum og stuttermabol eða hlýrabol, skór ekki nauðsynlegir en leyfilegir)
Yfirþjálfari: Böðvar Tandri Reynisson
Þú getur skráð þig strax í meðlimaáskrift en þá færðu 75% afslátt af öllum sex vikna grunnnámskeiðum og aðgang að öllum opnum tímum.