SJÁLFSVARNARNÁMSKEIÐ FYRIR KONUR

Sunna Rannveig með sjálfsvarnarnnámskeið í maí.Sjálfsvarnarnámskeið fyrir konur sem Mjölnir heldur í samvinnu við Bjarkarhlíð (miðstöð fyrir þolendur ofbeldis) og Lögregluna á höfuðborgarsvæðinu.

Fjölmargir aðilar hafa aðkomu að því að leiðbeina á námskeiðinu en Sunna Rannveig Davíðsdóttir bardagakona hefur yfirumsjón með því. Það er afar nærtækt að Sunna leiði námskeiðið þar sem hún byrjaði upphaflega að æfa bardagaíþróttir til að geta varið sjálfa sig og þessi málaflokkur hefur lengi verið henni hugleikinn.

Á námskeiðinu, sem er tvisvar í viku í fimm vikur, er hvort tveggja horft á líkamlega þáttinn og einnig andlega þáttinn. Allt frá því að greina hættuna og að vinna upp kjark til að takast á við hana yfir i að hafa vitund um hver úrræðin eru. Námskeiðið snýst um finna leiðir til að forðast ofbeldi en einnig í ýmsa tækni sem nýtist við sjálfsvörn og sjálfsstyrkingu. M.a. verður farið í varnir gegn höggum, hvernig á að losa grip, hvernig hægt er að sleppa undan ef einhver kemst ofan á og ýmis önnur tök og tækni til sjálfsvarnar.

Eins og fram kom er námskeiðið haldið í samvinnu við Bjarkarhlíð og Lögregluna á höfuðborgarsvæðinu en fulltrúar frá þeim munum vera með fræðslu á námskeiðinu. Þá verður einn tími fyrir slökun, yoga og öndunaræfingar.

Hvenær: Mánudaga og miðvikudaga kl. 19:15. Næsta námskeið hefst miðvikudaginn 23. maí (5 vikur)

Verð: 25.990 krónur (19.500 fyrir meðlimi Mjölnis)

Þjálfarar: Sunna Rannveig Davíðsdóttir og fleiri.

 

 

Skráning á námskeið

 

MjölnirMjölnir MMA

Flugvallarvegur 3-3a
102 Reykjavík
Iceland

+354 534 4455
mjolnir@mjolnir.is

OPNUNARTÍMAR

Mánudagar, miðvikudagar og föstudagar: 06:15 - 22:00

Þriðjudagar og fimmtudagar: 07:00 - 22:00

Föstudagar: 06:15 - 20:00

Laugardagar: 08:45 - 15:00

Sunnudagar: 10:15 - 15:00

Æfingasalir loka samkvæmt stundatöflu þegar síðasta tíma lýkur en lyftingasalir eru opnir mán.-fim. til 22:00 (fös. 20:00).

Sauna, heiti- og kaldi pottur loka 15 min á undan skipulagðri lokun.

Skráning á póstlista

Svæði