Freyjuafl - Mömmutímar og meðgönguleikfimi

Freyjuafl - mömmuþrekFreyjuafl er æfingakerfi fyrir nýbakaðar og verðandi mæður þar sem kríli eru boðin velkomin með. Í tímunum er farið í góðar þrek- og styrktaræfingar sem eru sérsniðnar að þessum hóp.

Mömmuþrek

Fyrir nýbakaðar mæður er lögð áhersla á að virkja og styrkja kjarnann og grindarbotn í öllum æfingum. Í upphafi bjóðum við hverri móður að meta ástandið hvað varðar kvið, grindarbotn og almennt líkamsástand. Út frá því byggjum við smám saman upp styrk hennar og þrek. Þetta þýðir að hver og ein móðir getur aðlagað æfingarnar að sínum þörfum og líkamsástandi. Lítil kríli eru boðin sérstaklega velkomin með mömmum sínum í tímana. Innifalið í áskrift er aðgangur að Yogatímum Mjölnis sem er kjörið að nýta sér meðfram þrektímunum.

Verðandi mæður 

Fyrir verðandi mæður er lögð áhersla á að viðhalda styrk og þreki á meðgöngu með viðeigandi æfingum undir faglegri leiðsögn þjálfara. Lögð er áhersla á rétta beitingu grindarbotns og að virkja og styrkja þá vöðvahópa sem gegna mikilvægu hlutverki á meðgöngu og í fæðingu. Verðandi móðirin getur alltaf aðlagað æfingarnar og erfiðleikastigið eftir sínum þörfum með aðstoð þjálfarans og má gera ráð fyrir því að æfingarnar taki breytingum eftir því sem lengra líður á meðgönguna. Innifalið í áskrift er aðgangur að Yogatímum Mjölnis sem er kjörið að nýta sér meðfram þrektímunum.

Tímarnir eru:

  • Á mánudögum, miðvikudögum og föstudögum kl. 10:30.
Þjálfarar: Gyða Erlingsdóttir, Hildur Guðný Káradóttir og Agnes Alda Magnúsdóttir.
Þjálfarar hafa hlotið sérstaka þjálfun í að kenna meðgöngu- og mömmutíma og hafa mikla reynslu af þrekþjálfun.

áskrift

 

 

 

MjölnirMjölnir MMA

Flugvallarvegur 3-3a
102 Reykjavík
Iceland

+354 534 4455
mjolnir@mjolnir.is

OPNUNARTÍMAR

Mánudagar, miðvikudagar og föstudagar: 06:15 - 22:00

Þriðjudagar og fimmtudagar: 07:00 - 22:00

Föstudagar: 06:15 - 20:00

Laugardagar: 08:45 - 15:00

Sunnudagar: 10:15 - 15:00

Æfingasalir loka samkvæmt stundatöflu þegar síðasta tíma lýkur en lyftingasalir eru opnir mán.-fim. til 22:00 (fös. 20:00).

Sauna, heiti- og kaldi pottur loka 15 min á undan skipulagðri lokun.

Skráning á póstlista

Svæði