BENJAMÍN OG HJÖRDÍS SIGURVEGARAR VÍKINGALEIKANNA

BENJAMÍN OG HJÖRDÍS SIGURVEGARAR VÍKINGALEIKANNA
Sigurvegarar Víkingaleikanna 2022

Víkingaleikarnir fóru fram í 10. sinn núna á laugardaginn. Í fyrsta sinn var mótið opið öllum en hingað til hafa leikarnir einungis verið fyrir meðlimi Mjölnis.

Keppendur þurftu að fara í gegnum þrjá erfiða vibðurði og stóðu þau Benjamín Þorlákur og Hjördís Ósk uppi sem sigurvegarar að lokum en þetta er í þriðja sinn sem Benjamín sigrar Víkingaleikana. Þau fengu að launum árskort í Mjölni, kassa af Monster Gold Ultra, fæðubótarefni frá Hreysti, gafabréf á Deig, gjafabréf á Local, Active foam roller frá Sportvörum og föt frá Altis.

Karlaflokkur:

1. sæti: Benjamín Þorlákur Eiríksson
2. sæti: Sigurður Hafsteinn Jónsson
3. sæti: Bjarni Leifs Kjartansson

Kvennaflokkur:

1. sæti: Hjördís Ósk Óskarsdóttir
2. sæti: Þórdís Þorkelsdóttir
3. sæti: Bryndís María Björnsdóttir

Það voru einnig veitt verðlaun fyrir sigur í hverjum viðburði fyrir sig. Sigurður Hafsteinn og Hjördís Ósk sigruðu 1. viðburð og fengu að launum skópar frá Under Armour. Benjamín Þorlákur og Hjördís sigruðu viðburð 2 og fengu ketilbjöllu frá Sportvörum. Þriðja viðburðinn sigruðu Sigurður Hafsteinn og Sandra Filippusdóttir en þau fengu Mjölnispeysu.

Mótið gekk vel fyrir sig og við hlökkum til að sjá enn stærri Víkingaleika á næsta ári. 

Fyrri sigurvegarar: 

Karlaflokkur:

2021: Ægir Þorsteinsson
2019: Jeremy Aclipen
2018: Böðvar Tandri Reynisson
2017: Sindri Jónsson
2016: Benjamín Þorlákur Eiríksson
2015: Benjamín Þorlákur Eiríksson
2014: Henning Jónasson
2013: Brynjar Smári Rúnarsson
2012: Henning Jónasson

 

Kvennaflokkur:

2021: Sunna Björk Skarphéðinsdóttir
2019: Ingibjörg Kristín Jónsdóttir
2018: Birna María Másdóttir
2017: Dóra Sóldís Ásmundardóttir
2016: Þórdís Anna Oddsdóttir
2015: Dóra Sóldís Ásmundardóttir
2014: Ragna Hjartardóttir
2013: Katrín Ólafsdóttir
2012: Heiða Hrönn Karlsdóttir


MjölnirMjölnir MMA

Flugvallarvegur 3-3a
102 Reykjavík
Iceland

+354 534 4455
mjolnir@mjolnir.is

OPNUNARTÍMAR

Mánudagar, miðvikudagar og föstudagar: 06:15 - 22:00

Þriðjudagar og fimmtudagar: 07:00 - 22:00

Föstudagar: 06:15 - 20:00

Laugardagar: 08:45 - 15:00

Sunnudagar: 10:15 - 15:00

Æfingasalir loka samkvæmt stundatöflu þegar síðasta tíma lýkur en lyftingasalir eru opnir mán.-fim. til 22:00 (fös. 20:00).

Sauna, heiti- og kaldi pottur loka 15 min á undan skipulagðri lokun.

Skráning á póstlista

Svæði