LOKAÐ VEGNA VIÐGERÐA VEITNA KL. 9-14 Á MIÐVIKUDAGINN

LOKAÐ VEGNA VIÐGERÐA VEITNA KL. 9-14 Á MIÐVIKUDAGINN
Lokað
Vegna viðgerða Veitna í hverfinu verður lokað í Mjölni frá kl. 9-14 á miðvikudaginn 2. nóvember. Áður auglýst heitavatnsleysi á fimmtudag verður hins vegar ekki samkvæmt nýrri tilkynningu frá Veitum.
 

Hér að neðan er tilkynning Veitna:

"Kæri viðskiptavinur. Það verður ekki heitavatnslaust hjá ykkur fimmtudaginn 03. nóvember 09:00-18:00 eins og áður var auglýst. Hins vegar verður kaldavatnslaust miðvikudaginn 02. nóvember 09:00-14:00 eins og var gert ráð fyrir. 

Kaldavatnsleysi: Við vörum þig við slysahættu vegna þess að einungis kemur heitt vatn úr blöndunartækjum. Ef þú þarft að sturta niður úr salerninu geturðu notað til þess heita vatnið. Gættu þess þó að það sé ekki alveg sjóðheitt því það getur sprengt postulín. Þurfirðu neysluvatn meðan á kaldavatnsleysinu stendur, geturðu notað vatn úr heita krananum og kælt það. Brennisteinninn í vatninu getur valdið sumum óþægindum en er skaðlaus.

Nánari upplýsingar: https://www.veitur.is/truflun/kaldavatnslaust-a-flugvallarvegi-135-og-7"

 


MjölnirMjölnir MMA

Flugvallarvegur 3-3a
102 Reykjavík
Iceland

+354 534 4455
mjolnir@mjolnir.is

OPNUNARTÍMAR

Mánudagar, miðvikudagar og föstudagar: 06:15 - 22:00

Þriðjudagar og fimmtudagar: 07:00 - 22:00

Föstudagar: 06:15 - 20:00

Laugardagar: 08:45 - 15:00

Sunnudagar: 10:15 - 15:00

Æfingasalir loka samkvæmt stundatöflu þegar síðasta tíma lýkur en lyftingasalir eru opnir mán.-fim. til 22:00 (fös. 20:00).

Sauna, heiti- og kaldi pottur loka 15 min á undan skipulagðri lokun.

Skráning á póstlista

Svæði