Box CT

BOX CTBox CT er keppnishópur í ólympískum hnefaleikum á vegum HR/Mjölnis þar sem lögð er áhersla á hnefaleika sem keppnisíþrótt. Mikil áhersla er lögð á tækni og sparr og velja þjálfarar úr hópi iðkenda þá sem komast úr 201 yfir í keppnishóp. Því eru æfingarnar lokaðar öllum öðrum en þeim sem mæta kröfum þjálfara. Meðlimir keppnisliðsins þurfa að uppfylla lágmarks mætingarskyldu á æfingar svo þeir geti keppt. Mikilvægt er að allir iðkendur fari eftir og virði reglur félagsins sem eru aðgengilegar hér á vefnum.

Við erum hér á Facebook: Mjölnir-Box & Kickbox

Markmið: Að bæta, þróa og viðhalda færni hnefaleikamanna til hámarsksárangurs í keppnum.

Búnaður: Sá staðalbúnaður sem iðkendur þurfa að hafa með sér í tíma og seldir eru stakir og/eða í sérstökum byrjendapökkum í Óðinsbúð er eftirfarandi:

  • tannhlífar
  • vafningar
  • boxhanskar (mælt með, annars eru lánshanskar í boði)
  • íþróttaföt (mælt með stuttbuxum og stuttermabol eða hlýrabol)

Þjálfarar: Yfirþjálfari hnefaleika o.fl.

Mjölnir

Mjolnir MMA

Flugvallarvegur 3-3a
102 Reykjavik
Iceland

+354 534 4455
mjolnir@mjolnir.is

 

OPENING HOURS

Mondays, Wednesdays and Fridays: 06:15 - 22:00
Tuesdays and Thursdays: 07:00 - 22:00
Saturdays: 08:45 - 14:00
Sundays: 10:15 - 15:00

Training halls close according to the Timetable when the last class ends, but weight lifting is open Mon.-Thu. until 22:00 (Fri. 20:30).

Subscribe to mailinglist

Division