Flýtilyklar
MARGFALDUR GEORGÍSKUR MEISTARI NÝR YFIRÞJÁLFARI Í BOXI
Beka Danelia er nýr yfirþjálfari hnefaleika í Mjölni! Beka er sennilega reynslumesti hnefaleikamaður landsins en hann hefur æft box frá barnsaldri og keppt í á fimmta tug bardaga og unnið til fjölda titla í heimalandi sínu, Georgíu.
Hann er meðal annars tvöfaldur georgískur meistari og bikarmeistari en hnefaleikar eru mjög rótgrónir í Georgíu og standardinn miklu hærri en hér á landi. Þá hefur Beka keppt og æft víða erlendis og var m.a. valinn til þátttöku í æfingabúðum með “Heimsliðinu” svokallaða þar sem hann æfði með heimsklassa þjálfurum. Hann hefur einnig keppt bæði á Heimsmeistara- og Evrópumótum svo fátt eitt sé nefnt.
Það er því mikill fengur að fá Beka til okkar og við hann innilega velkominn í þjálfarateymi Mjölnis og Æsis.