FRUMVARP Á ALÞINGI UM BARDAGAÍÞRÓTTIR

FRUMVARP Á ALÞINGI UM BARDAGAÍÞRÓTTIR
Berglind Ósk Guðmundsdóttir og Gunnar Nelson

Síðastliðinn föstudag var lagt frumvarp á Alþingi til að heimila skipulagðar keppnir í bardagaíþróttum gegn leyfisveitingu frá hinu opinbera. Berglind Ósk Guðmundsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, lagði frumvarpið en hún kom í heimsókn til okkar á dögunum. 

Leyfisveiting á skipulögðum keppnum í MMA (og öðrum bardagaíþróttum sem fela í sér höfuðhögg) er nauðsynleg til að gæta fyllsta öryggis iðkenda. Slíkt leyfi á MMA keppnum hér á landi væri gríðarleg lyftistöng fyrir íþróttina hér á landi. Okkar fremsta bardagaíþróttafólk gæti því loksins keppt hér á Íslandi í stað þess að vera stöðugt að ferðast erlendis til þess eins að keppa í sinni íþrótt.

Það er enn langur vegur framundan í að þetta verði samþykkt en boltinn er kominn á góða hreyfingu!
Frumvarpið má lesa hér: https://www.althingi.is/altext/153/s/1515.html


MjölnirMjölnir MMA

Flugvallarvegur 3-3a
102 Reykjavík
Iceland

+354 534 4455
mjolnir@mjolnir.is

OPNUNARTÍMAR

Mánudagar, miðvikudagar og föstudagar: 06:15 - 22:00

Þriðjudagar og fimmtudagar: 07:00 - 22:00

Föstudagar: 06:15 - 20:00

Laugardagar: 08:45 - 15:00

Sunnudagar: 10:15 - 15:00

Æfingasalir loka samkvæmt stundatöflu þegar síðasta tíma lýkur en lyftingasalir eru opnir mán.-fim. til 22:00 (fös. 20:00).

Sauna, heiti- og kaldi pottur loka 15 min á undan skipulagðri lokun.

Skráning á póstlista

Svæði