HR/MJÖLNIR MEÐ TVO ÍSLANDSMEISTARATITLA

Hnefaleikafélag Reykjavíkur/Mjölnir vann tvo titla á Íslandsmeistaramótinu í hnefaleikum sem fram fór á dögunum.

Íslandsmeistaramótið fór fram í Reykjanesbæ á sunnudaginn en þar var Mjölnir með fimm keppendur. Kristín Sif Björgvinsdóttir varð Íslandsmeistari í -75 kg flokki kvenna eftir sigur eftir einróma dómaraákvörðun. Kristín nældi sér í silfur á Norðurlandamótinu á dögunum og hefur því verið að gera það einstaklega gott í boxinu að undanförnu.

Elmar Gauti Halldórsson tók svo Íslandsmeistaratitilinn í -81 kg flokki karla eftir klofna dómaraákvörðun í hnífjöfnum bardaga. Alexander Puchkov tapaði í úrslitum í -64 kg flokki fyrir Ásgrími Egilssyni en bardaginn var hraður og skemmtilegur og að lokum valinn besti bardagi mótsins. Ásgrímur hafði fyrr um daginn unnið Fannar Þór Ragnarsson eftir dómaraákvörðun. Bjarni Ottóson mátti síðan sætta sig við tap í úrslitum í -75 kg flokki karla gegn Arnóri Má Grímssyni.

Flottur árangur hjá okkar fólki!


MjölnirMjölnir MMA

Flugvallarvegur 3-3a
102 Reykjavík
Iceland

+354 534 4455
mjolnir@mjolnir.is

OPNUNARTÍMAR

Mánudagar, miðvikudagar og föstudagar: 06:15 - 22:00

Þriðjudagar og fimmtudagar: 07:00 - 22:00

Föstudagar: 06:15 - 20:00

Laugardagar: 08:45 - 15:00

Sunnudagar: 10:15 - 15:00

Æfingasalir loka samkvæmt stundatöflu þegar síðasta tíma lýkur en lyftingasalir eru opnir mán.-fim. til 22:00 (fös. 20:00).

Sauna, heiti- og kaldi pottur loka 15 min á undan skipulagðri lokun.

Skráning á póstlista

Svæði