MJÖLNIR OPEN 14 FER FRAM 13. APRÍL

MJÖLNIR OPEN 14 FER FRAM 13. APRÍL
Mjölnir Open 14

Mjölnir Open 14 verður á dagskrá þann 13. apríl. Mótið er eitt stærsta glímumót ársins og nokkurs konar óopinbert Íslandsmeistaramót í nogi uppgjafarglímu.

Mótið hefst kl. 11 og verður keppt á tveimur keppnisvöllum í Mjölni. Skráningargjald er 4.000 kr. og fæst ekki endurgreitt ef viðkomandi hættir við þátttöku. Aðgangseyrir fyrir áhorfendur er 500 kr. Skráningu lýkur föstudaginn 12. apríl kl. 12:00. Vigtun verður í Mjölnishöllinni föstudaginn 12. apríl milli kl. 17:00 - 19:00.

Skráning á mótið fer fram í gegnum Smoothcomp en greiðsla mótgjalds fer fram í afgreiðslu Mjölnis og þarf að greiða áður en keppni hefst. Athugið, allir keppendur þurfa að skrá sig í gegnum Smoothcomp en skráning telst ekki endanleg fyrr en búið er að greiða mótsgjald.

Dagskrá:
-Húsið opnar kl. 10:00
-Reglufundur kl. 10:30 (skyldumæting liðsstjóra).
-Mótið hefst kl. 11:00

Keppt verður í eftirfarandi þyngdarflokkum karla:

Opinn flokkur karla
+99 kg karla
-99 kg karla
-88 kg karla
-77 kg karla
-66 kg karla

Keppt verður í eftirfarandi þyngdarflokkum kvenna:

Opinn flokkur kvenna
+70 kg kvenna
- 70 kg kvenna
- 60 kg kvenna

Keppnisreglur á Mjölnis Open eru hér: https://www.mjolnir.is/static/files/Keppnisreglur/keppnisreglur-mjolnir-open.pdf


MjölnirMjölnir MMA

Flugvallarvegur 3-3a
102 Reykjavík
Iceland

+354 534 4455
mjolnir@mjolnir.is

OPNUNARTÍMAR

Mánudagar, miðvikudagar og föstudagar: 06:15 - 22:00

Þriðjudagar og fimmtudagar: 07:00 - 22:00

Föstudagar: 06:15 - 20:00

Laugardagar: 08:45 - 15:00

Sunnudagar: 10:15 - 15:00

Æfingasalir loka samkvæmt stundatöflu þegar síðasta tíma lýkur en lyftingasalir eru opnir mán.-fim. til 22:00 (fös. 20:00).

Sauna, heiti- og kaldi pottur loka 15 min á undan skipulagðri lokun.

Skráning á póstlista

Svæði