UNBROKEN DEILDIN HELDUR ÁFRAM Á LAUGARDAGINN

Keppnisdagur 2 í Unbroken deildinni er nú á laugardaginn. Glímurnar byrja kl. 11 og verður streymt frá öllum völlum eins og síðast á Youtube síðu Mjölnis. 

Glímulistinn fyrir laugardaginn er opinber og má finna hér. 166 glímur eru á dagskrá á fjórum völlum og má sjá klukkan hvað glímurnar hefjast á Smoothcomp hér. Dagskráin breytist þó mjög hratt og hvetjum við keppendur til að fylgjast mjög vel með á Smoothcomp.

Líkt og síðast hefst vigtun kl. 9:30 og stendur til 10:30. Eftir það er ekki hægt að vigta sig inn og ef keppandi mætir ekki í vigtun telst hann ekki gjaldgengur á þann keppnisdag.

Við biðjum keppendur sem ekki geta mætt á laugardaginn sökum veikinda eða meiðsla að tilkynna forföll með því að senda póst á petur@mjolnir.is.

Stöðutöfluna í hverjum flokki má sjá hér en hún verður uppfærð eftir helgi.


MjölnirMjölnir MMA

Flugvallarvegur 3-3a
102 Reykjavík
Iceland

+354 534 4455
mjolnir@mjolnir.is

OPNUNARTÍMAR

Mánudagar, miðvikudagar og föstudagar: 06:15 - 22:00

Þriðjudagar og fimmtudagar: 07:00 - 22:00

Föstudagar: 06:15 - 20:00

Laugardagar: 08:45 - 15:00

Sunnudagar: 10:15 - 15:00

Æfingasalir loka samkvæmt stundatöflu þegar síðasta tíma lýkur en lyftingasalir eru opnir mán.-fim. til 22:00 (fös. 20:00).

Sauna, heiti- og kaldi pottur loka 15 min á undan skipulagðri lokun.

Skráning á póstlista

Svæði