ÚRSLITAKVÖLD UNBROKEN DEILDARINNAR

ÚRSLITAKVÖLD UNBROKEN DEILDARINNAR
Unbroken úrvalsdeild 2023

Úrslitakvöld Unbroken deildarinnar fer fram næstkomand laugardag, 3. júní, en þar munu úrslitin ráðast í fyrstu deildarkeppninni í uppgafarglímu á Íslandi.

Eftir þrjá keppnisdaga (janúar, febrúar og mars) Unbroken deildarinnar ráðast úrslitin á laugardaginn í Tjarnarbíói. Þar munu efstu tveir keppendurnir í hverjum flokki mætast í hreinni úrslitaglímu.

Deildinni var skipt í byrjendadeild (minna en tveggja ára reynsla af glímu) og úrvalsdeild. Úrslitin í byrjendadeildinni hefjast kl. 16 og úrvalsdeildin kl. 19:30. Það verða 7 glímur í byrjendadeildinni og 6 í úrvalsdeildinni. Auk þess verða 3 ofurglímur í lokin þar sem erlendir keppendur mæta okkar allra bestu glímumönnum. Erlendu keppendurnir eru allir frábærir glímumenn sem mæta sérstaklega hingað til lands til að keppa á viðburðinum.

Í aðalglímu kvöldsins verður Valentin Fels gegn Marcin Held. Valentin er franskur glímumaður sem hefur verið búsettur hér á landi í hálan áratug. Hann er einn af allra bestu glímumönnum landsins og þjálfar bæði hjá Mjölni og Brimi á Akranesi. Andstæðingur hans, Marcin Held, er frábær glímumaður sem hefur getið sér gott orð í MMA heiminum. Marcin hefur barist í UFC, Bellator og berst nú í PFL. Marcin er þekktur fyrir frábæra takta á gólfinu og var aðeins 21 árs gamall þegar hann fékk svarta beltið í brasilísku jiu-jitsu.

Ómar Yamak er svart belti í brasilísku jiu-jitsu og hefur verið einn besti glímumaður landsins undanfarin ár. Hann mætir Lee Hammond sem hefur lengi verið meðal efnilegustu bardagakappa Írlands. Lee er 5-0 sem atvinnumaður í MMA og verður í næstu seríu The Ultimate Fighter sem fer í sýningar í næstu viku. Lee verður þar í liði Conor McGregor enda æfir Lee hjá SBG og hefur lengi æft með Conor á Írlandi. Lee er frábær glímumaður en hann hefur bæði unnið British Nogi Championship og IBJJF Irish Championship. Það er frábært að fá hann hingað til lands og má búast við afar skemmtilegri glímu við Ómar.

Kristján Helgi Hafliðason hefur farið hamförum á glímumótum hérlendis undanfarin tvö ár. Hann hefur gjörsigrað mótherja sína og unnið öll stóru mótin hérlendis síðustu ár. Hann mætir Mohammed Avtarhanov frá Írlandi. Mohammed er aðeins tvítugur en hefur glímt í fjölmörg ár. Hann er fimmfaldur Írlandsmeistari, á 3 titla á Grapple Kings, Evrópumeistari unglinga, margfaldur meistari á Dublin Open og klárar 88% viðureigna sína á uppgjafartaki.

Valentin Fels vs. Marcin Held  Ómar Yamak vs. Lee Hammond  Kristján Helgi vs. Mohammed Avtarhanov 


Svona lítur uppröðunin út á glímukvöldinu en miðasala fer fram á Tix.is.

Úrvalsdeild (kl. 19:30):

Valentin Fels vs. Marcin Held

Ómar Yamak vs. Lee Hammond

Kristján Helgi vs. Mohammed Avtarhanov

-99 kg karla: Halldór Logi Valsson (Mjölnir) vs. Bjarki Eyþórsson (Mjölnir)

-88 kg karla: Stefán Fannar Hallgrímsson (Mjölnir) vs. Helgi Freyr Ólafsson (Mjölnir)

-70 kg kvenna: Ólöf Embla Kristinsdóttir (VBC) vs. Sara Dís Davíðsdóttir (Mjölnir)

-77 kg karla: Vilhjálmur Arnarsson (Mjölnir) vs. Breki Harðarson (Atlantic)

-60 kg kvenna: Inga Birna Ársælsdóttir (Mjölnir) vs. Auður Olga Skúladóttir (Mjölnir)

+70 kg kvenna: Anna Soffía Víkingsdóttir (VBC) vs. Hildur María Sævarsdóttir (Reykjavík MMA)


Unbroken byrjendadeildByrjendadeild (kl. 16:00):

+99 kg karla: Birgir Steinn Ellingsen (Brimir BJJ) vs. Eiríkur Guðni Þórarinsson (Mjölnir)

-99 kg karla: Bragi Þór Pálsson (Mjölnir) vs. Kormákur Snorrason (Mjölnir)

-88 kg karla: Stefán Atli Ólason (Brimir BJJ) vs. Hilmir Dan Gíslason (World Class MMA)

-77 kg karla: Aron Óli Valdimarsson (Reykjavík MMA) vs. Guðmar Kristinsson (Reykjavík MMA)

-66 kg karla: Haukur Birgir Jónsson (Mjölnir) vs. Björn Hilmarsson (Mjölnir)

-70 kg kvenna: Vera Óðinsdóttir (Reykjavík MMA) vs. Kolfinna Þöll Þórðardóttir (Mjölnir)

-60 kg kvenna: Harpa Hauksdóttir (Mjölnir) vs. Þórhanna Inga Ómarsdóttir (VBC)







MjölnirMjölnir MMA

Flugvallarvegur 3-3a
102 Reykjavík
Iceland

+354 534 4455
mjolnir@mjolnir.is

OPNUNARTÍMAR

Mánudagar, miðvikudagar og föstudagar: 06:15 - 22:00

Þriðjudagar og fimmtudagar: 07:00 - 22:00

Föstudagar: 06:15 - 20:00

Laugardagar: 08:45 - 15:00

Sunnudagar: 10:15 - 15:00

Æfingasalir loka samkvæmt stundatöflu þegar síðasta tíma lýkur en lyftingasalir eru opnir mán.-fim. til 22:00 (fös. 20:00).

Sauna, heiti- og kaldi pottur loka 15 min á undan skipulagðri lokun.

Skráning á póstlista

Svæði