Flýtilyklar
Yoga kjarni
Mjölnir kynnir nýtt námskeið; Yoga Kjarni. Námskeiðið hentar bæði vel fyrir byrjendur jafnt sem lengra komna yoga iðkendur og tilvalið mótvægi fyrir þá sem þegar stunda mikla hreyfingu. Farið verður í öndun, grunnstöður, hreyfingar, tækni og núvitund. Námskeiðið er samtals 8 klukkustundir og veitir þátttakendum góðan grunn á þeim þremur megin aðferðum yoga sem notast er við í opnum tímum í Mjölni:
1) Vinyasa Yogaflæði felur í sér hreyfingu, ákefð, og svita. Hressandi æfingar og djúpar teygjur þar sem flætt er úr einni stöðu í aðra með tengingu við andardráttinn. Fjölbreyttar æfingar sem styrkja miðjuna og koma jafnvægi á stoðkerfið.
2) Yoga Nidra er leidd djúpslökun þar sem iðkendur liggja á bakinu og ná djúpri slökun á taugakerfinu og kyrrð í huganum. Mjög áhrifarík slökunaraðferð sem kemur huganum í djúpa ró
3) Yin & Restorative Yoga er aðferð þar sem farið er hægar í öndun og mýkra í hreyfingar. Boðið er upp á færri stöður sem aftur á móti er haldið lengur. Djúp opnun og losun á bandvefnum.
Í lok námskeiðsins ættu því allir að vera komnir með góðan grunn til að byggja svo ofaná og geta óhræddir mætt í alla yogatíma sem eru í boði í stundatöflu Mjölnis. Frábært fyrir alla sem hafa áhuga á að stunda yoga eða eru þegar að stunda yoga og langar að læra meira.
Við erum hér á Facebook: Yoga
Búnaður: Ekki er gerð krafa um að iðkendur taki með sér búnað í þessa tíma, hins vegar væri gott ef iðkendur geta tekið með sér handklæði og/eða dýnu, eigi þeir slíkan búnað.
- handklæði og/eða dýna
- íþróttaföt (mælt með stuttbuxum og stuttermabol eða hlýrabol, engir skór)
Yfirþjálfari: Dagný Rut Gísladóttir
Þú getur skráð þig strax í meðlimaáskrift en þá færðu 75% afslátt af öllum grunnnámskeiðum og aðgang í alla opna tíma.