SUMARNÁMSKEIÐ MJÖLNIS FYRIR 9-12 ÁRA

SUMARNÁMSKEIÐ MJÖLNIS FYRIR 9-12 ÁRA
Sumarnámskeið Mjölnis fyrir 9-12 ára

Í suma verðum við, auk hefðbundins barnastarfs, með skemmtileg vikulöng sumarnámskeið í Mjölni fyrir börn á aldrinum 9-12 ára. Á námskeiðunum verður farið yfir grunntækni í sjálfsvörn, glímu, styrktarþjálfun og þreki. Áhersla er lögð á að krakkarnir njóti sín sem best í faglegu umhverfi undir handleiðslu reyndra þjálfara á heimsmælikvarða. Þá gæti verið farið í  útileiki og fleira gaman, eftir veðri og vindum. Börnin skulu taka með sér íþróttaföt, útiföt eftir veðri og nesti. 

Kennarar á námskeiðunum hafa allir reynslu í þjálfun eða umönnun barna í Mjölni.

Þetta námskeið er fullkomið fyrir þá sem vilja:

  • Aukið sjálfstraust
  • Styrkjast líkamlega og andlega
  • Læra sjálfsvörn og grunn hreyfingar í lyftingum (hnébeygja, bekkpressa o.fl.)
  • Hreyfa sig úti (Öskjuhlíð og Nauthólsvík) og í góðum félagsskap.

 

Tímabil:

10.-14. júní - (5 DAGA NÁMSKEIÐ)

  • kl. 09:00-12:00           35.000 kr.

18.-21. júní - (4 DAGA NÁMSKEIÐ)

  • kl. 09:00-12:00           28.000 kr.

1.-5. júlí - (5 DAGA NÁMSKEIÐ)

  • kl. 09:00-12:00           35.000 kr.

Innifalið í gjaldi er:

  • Mjölnis Bolur
  • Mjölnis Stuttbuxur
  • Mjölnis Brúsi

Kynningarmyndband með Gunnari Nelson

Skráning á námskeið


MjölnirMjölnir MMA

Flugvallarvegur 3-3a
102 Reykjavík
Iceland

+354 534 4455
mjolnir@mjolnir.is

OPNUNARTÍMAR

Mánudagar og miðvikudagar: 06:15 - 22:00

Þriðjudagar og fimmtudagar: 07:00 - 22:00

Föstudagar: 06:15 - 20:00

Laugardagar: 08:45 - 15:00

Sunnudagar: 10:00 - 15:00

Æfingasalir loka samkvæmt stundatöflu þegar síðasta tíma lýkur en lyftingasalir eru opnir mán.-fim. til 22:00 og fös. til 20:00.

Sauna, heiti- og kaldi pottur loka 15 mínútum á undan skipulagðri lokun.

Skráning á póstlista

Svæði