Box 301 (CT) Unglinga

Box 301 (CT) er keppnishópur unglinga í ólympískum hnefaleikum á vegum HR/Mjölnis þar sem lögð er áhersla á hnefaleika sem keppnisíþrótt. Mikil áhersla er lögð á tækni og sparr og velja þjálfarar úr hópi iðkenda þá sem komast úr 201 yfir í keppnishóp. Því eru æfingarnar lokaðar öllum öðrum en þeim sem mæta kröfum þjálfara. Meðlimir keppnisliðsins þurfa að uppfylla lágmarks mætingarskyldu á æfingar svo þeir geti keppt. Mikilvægt er að allir iðkendur fari eftir og virði reglur félagsins sem eru aðgengilegar hér á vefnum.

Markmið: Að bæta, þróa og viðhalda færni hnefaleikamanna til hámarsksárangurs í keppnum.

Búnaður: Sá staðalbúnaður sem iðkendur þurfa að hafa með sér í tíma og seldir eru stakir og/eða í sérstökum byrjendapökkum í Óðinsbúð er eftirfarandi:

  • tannhlífar
  • vafningar
  • boxhanskar (mælt með, annars eru lánshanskar í boði)
  • íþróttaföt (mælt með stuttbuxum og stuttermabol eða hlýrabol)

Þjálfarar: Vilhjálmur Hernandez og fleiri.

MjölnirMjölnir MMA

Flugvallarvegur 3-3a
102 Reykjavík
Iceland

+354 534 4455
mjolnir@mjolnir.is

OPNUNARTÍMAR

Mánudagar, miðvikudagar og föstudagar: 06:15 - 22:00

Þriðjudagar og fimmtudagar: 07:00 - 22:00

Föstudagar: 06:15 - 20:00

Laugardagar: 08:45 - 15:00

Sunnudagar: 10:15 - 15:00

Æfingasalir loka samkvæmt stundatöflu þegar síðasta tíma lýkur en lyftingasalir eru opnir mán.-fim. til 22:00 (fös. 20:00).

Sauna, heiti- og kaldi pottur loka 15 min á undan skipulagðri lokun.

Skráning á póstlista

Svæði