SPORTABLER TEKUR VIÐ AF STARA

Eins og áður hefur komið fram hefur Mjölnir tekið upp nýtt greiðslukerfi. Allar skráningar og greiðslur fara nú fram í Sportabler og þurfa allir meðlimir að vera með aðgang í Sportabler. Ef þú hefur ekki virkjað þinn aðgang í Sportabler, fylgdu þá skrefunum hér: https://www.mjolnir.is/is/frettir/mjolnir-fer-i-sportabler

Sportabler mun ekki einungis taka við af greiðslukerfinu okkar heldur líka Stara. Stari hefur séð um innskráningu iðkenda í tíma en heyrir nú sögunni til. Stari var tímabundin lausn á Covid tímum og reyndist okkur frábærlega en nú tekur Sportabler við.

Við viljum nota tækifærið og þakka Jósep kærlega fyrir hans mikla og óeigingjarna starf fyrir Mjölni. Jósep smíðaði Stara frá grunni og erum við honum óendanlega þakklát.

Allir þeir sem eru með virka áskrift í Sportabler geta skráð sig í tíma hér: https://www.sportabler.com/classes/mjolnir

Það er líka hægt að skrá sig í tíma í appinu undir „Viðburðir“ og er smellt á plúsinn þar (sjá mynd).

SPORTABLER


MjölnirMjölnir MMA

Flugvallarvegur 3-3a
102 Reykjavík
Iceland

+354 534 4455
mjolnir@mjolnir.is

OPNUNARTÍMAR

Mánudagar, miðvikudagar og föstudagar: 06:15 - 22:00

Þriðjudagar og fimmtudagar: 07:00 - 22:00

Föstudagar: 06:15 - 20:00

Laugardagar: 08:45 - 15:00

Sunnudagar: 10:15 - 15:00

Æfingasalir loka samkvæmt stundatöflu þegar síðasta tíma lýkur en lyftingasalir eru opnir mán.-fim. til 22:00 (fös. 20:00).

Sauna, heiti- og kaldi pottur loka 15 min á undan skipulagðri lokun.

Skráning á póstlista

Svæði